Leyfi innan netlaga - Þang
Leyfið er bundið við skip eða sléttupramma.
Skilyrði
Skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni.
Sléttuprammi hafi gilt haffærisskírteini.
Umsækjandi þarf að hafi fengið umsögn vegna nýtingaráætlunar frá Hafrannsóknarstofnun og Náttúrufræðistofnun.
Gildi leyfis
Gildistími leyfisins er allt að 5 ár.
Löndun sjávargróðurs og skráning afurða
Allan sjávargróður á að vigta á hafnarvog.
Skila þarf afladagbók fyrir hverja veiðiferð áður en skip eða sléttuprammi leggst að bryggju.
Veiðigjöld
Öflun er undanþegin veiðigjaldi en ekki af hrossaþara og stórþara.
Umsókn
Umsókn á að senda á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is.
Í umsókn þarf að koma fram:
Umsóknaraðili, nafn og kennitala
Upplýsingar um tengilið:
nafn
kennitala
símanúmer
netfang
Fylgigögn umsóknar
Nýtingaráætlun sem fengið hefur umsögn frá Hafrannsóknastofnun og Náttúrufræðistofnun.
Umsagnirnar eiga að fylgja áætluninni.
Í nýtingaráætluninni á eftirfarandi að koma fram:
hvaða skip eða sláttuprammi verði hagnýtt við öflun,
hversu miklu magni verði aflað,
hvar öflun fari fram og eftir atvikum hvaða svæði verði hvíld til að örva endurvöxt.
Áætlunin á að byggjast á mati á lífmassa og líklegu aðgengi. Leitast á við að gera grein fyrir áhrifum nýtingar á umhverfið með hliðsjón af þeim tækjum og aðferðum sem verða hagnýtt.
Leyfið kostar kr. 22.000 og innheimtist með greiðsluseðli í heimabanka umsækjanda.

Þjónustuaðili
Fiskistofa