Fyrirlagnarglugga stöðu- og framvinduprófa í grunnskólum landsins er nú lokið og þátttaka hefur verið afar góð. Alls voru 56.268 próf lögð fyrir á tímabilinu. Heildarfjöldi nemenda í 4.–10. bekk grunnskóla er til samanburðar um 33 þúsund, en hver nemandi gat tekið allt að tvö próf, annars vegar í stærðfræði og hins vegar í lesskilningi. Þetta sýnir að afar hátt hlutfall nemenda um land allt þreytti prófin, þar á meðal í árgöngum þar sem þátttaka er valkvæð, sem bendir til þess að skólar hafi í ríkum mæli kosið að nýta prófin sem verkfæri í sínu skólastarfi.