Sérstök starfræksla loftfara (SPO) gildir um alla starfrækslu þar sem loftfar er notað fyrir sérstaka starfsemi eins og
landbúnað
byggingastarfsemi
ljósmyndun
landmælingar
athuganir
eftirlit úr lofti
auglýsingaflug
listflug
fallhlífastökk
dráttur á svifflugum
reynsluflug vegna viðhalds
fleira...
Leyfi
Sérstök starfræksla er almennt ekki leyfisskyld, en fylla þarf út yfirlýsingu og senda til Samgöngustofu. Þegar staðfesting á móttöku yfirlýsingarinnar hefur borist er hægt að hefja starfsemina.
Undanskilin þessu er áhættusöm sérstök starfræksla (high risk SPO) sem krefst sérstakrar heimildar frá Samgöngustofu.
Nánari upplýsingar
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um sérstaka starfrækslu á vefsíðu EASA
Lög og reglur
Aðeins má stunda sérstaka starfrækslu á flugvélum sem falla undir reglugerð (ESB) nr. 2018/1139.
Í viðauka VIII við reglugerð (ESB) nr. 965/2012 (Part-SPO) eru þau ákvæði er eiga við um sérstaka starfrækslu loftfara í ábataskyni, sem og sérstaka starfrækslu flókinna loftfara sem er ekki í ábataskyni.
Heimilt er að stunda sérstaka starfrækslu sem er ekki í ábataskyni á einföldum loftförum í samræmi við ákvæði viðauka VII (Part-NCO).
Upplýsingar um kröfur til flugrekenda sem hyggjast stunda sérstaka starfrækslu má finna í Annex III við sömu reglugerð, Part-ORO (ORO.GEN, ORO.DEC, ORO.SPO).
Þjónustuaðili
Samgöngustofa