Athugið! Samgöngustofa hefur tekið í notkun nýtt kerfi fyrir afgreiðslu undanþága. Umsóknarferli helst óbreytt að mestu en vakin er athygli á eftirfarandi breytingum:
Sé sótt um þyngdarundanþágu þarf að skrá bil milli ása í umsókn
Umsækjandi þarf að setja inn greinargóða leiðarlýsingu frá upphafsstað til áfangastaðar
Undanþágur berast áfram í tölvupósti
Sækja má um undanþágu frá reglum um lengd, breidd, hæð, heildarþyngd og ásþunga ökutækis til Samgöngustofu. Ef undanþáguflutningar eru tíðir innan ákveðins svæðis, og í sérstökum tilfellum á milli svæða, er möguleiki að fá langtímaundanþágu.
Langtímaundanþágur eiga við þegar:
Heildarhæð farms er 4,60 metrar og minna
Heildarbreidd farms er 3,49 metrar og minna
Heildarlengd vagnlestar (bíll + vagn) er 25,25 metrar og minna
Heildarþyngd 60 tonn og minna
Athugið. Listinn hér fyrir ofan er eingöngu til viðmiðunar. Umsókn um langtímaundanþágu er metin hverju sinni eftir aðstæðum.
Kort af svæðum er að finna á heimasíðu Vegagerðar. Ef kortin eiga ekki við er hægt að óska eftir öðrum svæðum í umsókn.
Hver umsókn er metin hverju sinni en aldrei er gefin langtímaundanþága fyrir flutning sem þarfnast samþykki lögreglu.
Langtímaundanþágur eru með gildistíma frá mánuði í allt að eitt ár. Að öðru leyti gilda sömu reglur og um aðrar undanþágur.
Lög og reglur

Þjónustuaðili
Samgöngustofa