Hjólreiðar
Reiðhjól eru skilgreind sem ökutæki og því gilda að mestu sömu lög og reglur um akstur reiðhjóla og bíla. Helstu atriði sem hafa þarf í huga:
Áður en lagt er af stað
Skylt er að nota hlífðarhjálm við hjólreiðar fyrir börn yngri en 16.ára.
Hjólreiðamenn mega ekki nota snjalltæki við við hjólreiðar.
Hjólað á akbrautum
Hjóla má á akbrautum. Ekki er þó mælt með því að hjólað sé á akbrautum með mikilli og hraðri umferð (ef annar valkostur er í boði).
Hjólreiðamaður á almennt að halda sig hægra megin á þeirri akrein sem lengst er til hægri.
Hjóla má á miðri akrein þar sem hámarkshraði er 30 km. á klukkustund og sýna sérstaka aðgát við vegamót og þar sem akbraut og stígar skerast.
Hjólað á gangstétt eða gangstíg
Hjóla má á gangstéttum og gangstígum en hjólreiðamaður skal þar víkja fyrir gangandi vegfarendum og sýna þeim fulla tillitsemi.
Ef hjólastígur er samhliða gangstétt eða göngustíg skal notast við hjólastíga.
Ef hjólað er á gangstétt eða göngustíg, má ekki hjóla á meiri hraða sem, en telst eðlilegur gönguhraði.
Hjólreiðamaður þarf af gefa hljóðmerki þegar hann nálgast gangandi vegfarendur ef ætla má að þeir verði hans ekki varir.
Nánari upplýsingar
Þjónustuaðili
Samgöngustofa