Fara beint í efnið

Ferilskýrsla ökutækis

Ferilskýrsla ökutækis er yfirlit yfir sögu ökutækis sem byggir á upplýsingum úr ökutækjaskrá.

Eigendur geta nálgast ferilskýrslu sinna ökutækja á mínum síðum á Ísland.is sér að kostnaðarlausu. Aðrir geta keypt ferilskýrslu ökutækja hjá Samgöngustofu.

Ferilskýrsla inniheldur meðal annars upplýsingar um:

  • notkunarflokk

  • tryggingafélag

  • veðbönd

  • eigendaferil

  • umráðaferil

  • skráningarferil

  • tjónaferil

  • slysaferil

  • númeraferil

  • umferðarferil

  • skoðunarferil

Nánari upplýsingar um veðbönd og skuldir má nálgast í veðbókarvottorði á Ísland.is

Kostnaður

Hjá Samgöngustofu kostar ferilskýrsla ökutækis 492 krónur

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa