Fara beint í efnið

Ökutækjaferill

Ökutækjaferil er hægt að nálgast án endurgjalds á Mínum síðum undir Ökutækjaferill. Þar hefur þú aðgang að upplýsingum um þín eigin ökutæki.

Aðeins er hægt að sjá ökutækjaferil sem tilheyrir eigin kennitölu, ekki annarra.

Í ökutækjaferlinum má meðal annars sjá:

  • ökutæki sem hafa verið skráð á þína kennitölu, sem aðaleigandi, meðeigandi eða umráðamaður

  • hvenær ökutæki var fyrst skráð

  • hvenær þú keyptir ökutækið

  • hvenær þú seldir það

  • aðrar tengdar skráningarupplýsingar

Kostnaður

Ökutækjaferill er gjaldfrjáls í gegnum Ísland.is. Hjá Samgöngustofu kostar hann1.228 krónur

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa