Álaveiðar
Allar álaveiðar eru óheimilar í sjó, ám og vötnum á Íslandi nema að fengnu leyfi Fiskistofu vegna álaveiða til eigin neyslu.
Umsókn um leyfi
Umsóknartímabil fyrir leyfi Fiskistofu vegna álaveiða til eigin neyslu er árlega frá 1. mars til 1. apríl. Allar umsóknir eru sendar Hafrannsóknastofnun til umsagnar áður en ákvörðun er tekin um leyfisveitingu.
Skilyrði leyfa
Leyfi eru bundin því skilyrði að:
allur afli sé skráður.
Fiskistofu séu sendar árlegar skýrslur um sókn og afla.
Athugið
Ef áll veiðist í lax- eða silungsveiði er skylt að sleppa honum. Öll sala á íslenskum ál og álaafurðum er bönnuð.

Þjónustuaðili
Fiskistofa