Í einstaka tilfellum er hægt að endurskrá ökutæki sem hefur verið afskráð. Ekki er þó heimilt að endurskrá ökutæki sem hefur verið skilað til endurvinnslu (afskráð vegna úrvinnslu).
Skilyrði fyrir endurskráningu
Til að endurskrá ökutæki þarf það að standast endurskráningarskoðun á skoðunarstöð.
Skoðunin staðfestir að ökutækið uppfylli kröfur til að komast aftur á skrá.
Ferlið
Fara með ökutækið í endurskráningarskoðun á skoðunarstöð.
Þegar ökutækið hefur staðist skoðun er það endurskráð.
Gott að hafa í huga
Ef nýr eigandi tekur við ökutækinu þarf að ganga frá eigendaskiptum áður en það er endurskráð.
Tilgreina þarf tryggingafélag við endurskráningu.

Þjónustuaðili
Samgöngustofa