Veiðist eldisfiskur?
Ef grunur er um að eldisfiskur hafi veiðst óskar Fiskistofa eftir því að fá tilkynningu senda á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is eða í síma 569 7900 á skrifstofutíma.
Við tilkynningu þarf að gefa upp:
Hvar fiskurinn veiddist
Dagsetningu
Tegund fisks
Kyn (ef vitað)
Lengd
Þyngd
Einkenni eldislaxa
Strokulax úr eldi má þekkja á einu eða fleiri af eftirfarandi einkennum:
Skemmdir á uggum og sporði
Eyddar eða skemmdar tálknbárur
Breytt lögun trjónu
Kubbslegur vöxtur
Nánari upplýsingar um einkenni eldisfiska má sjá í bæklingi um viðbrögð við veiði á eldisfiski.
Skil á fiski til greiningar
Æskilegt er að koma fiskinum til greiningar hjá Fiskistofu eða Hafrannsóknastofnun:
Ferskum eða frosnum
Uppruni fisks er metinn út frá:
Útlitseinkenni
Erfðagreiningu
Ef ekki er hægt að skila fiski
Ef ekki er hægt að afhenda fiskinn má senda Fiskistofu eða Hafrannsóknastofnun hreistursýni til greiningar ásamt því að senda tölvupóst með mynd af fiskinum.
Framkvæmd töku á hreistursýni:
Nota á hreinan hníf við sýnatökuna
Skafa á um 20 hreistur af viðeigandi svæði á fiskinum
Setja í hreisturpoka eða annað pappírsumslag

Þjónustuaðili
Fiskistofa