Vefverslunarsvik
Tapaður peningur hjá svikavefverslun
1. Láttu banka eða fjármálaþjónustu vita
Ef þú hefur greitt með kortinu þínu fyrir vöru eða þjónustu sem hefur ekki skilað sér getur þú átt rétt á endurgreiðslu. Því fyrr sem þú bregst við, því meiri líkur eru á að endurheimta peninginn.
2. Tilkynntu svikin til lögreglu
Tilkynntu vefverslunina til lögreglu. Þótt peningurinn fáist ekki endurgreiddur getur lögreglan nýtt sér upplýsingarnar til að vara við síðunni og jafnvel taka hana niður. Þú getur tilkynnt hér eða á næstu lögreglustöð.
Þú getur fengið ráðleggingar og upplýsingar varðandi næstu skref hjá Neytendasamtökunum.
Þjónustuaðili
Lögreglan