Vefverslunarsvik
Notaðu öruggar vefverslanir
Skoðaðu vel þær síður sem þú vilt panta af áður en þú verslar á netinu.
Varastu svikavefsíður
Best er að fara beint inn á vef fyrirtækis eða stofnunar frekar en að smella á hlekki eða fara í gegnum leitarvél.
Skoðaðu slóðina vel, ef eitthvað er bogið við hana þá er líklega um svikasíðu að ræða.
Hjá traustum söluaðilum eru endurgreiðslu- og skilaskilmálar skýrir og aðgengilegir. Kíktu á skilmálana, ef þú finnur engar upplýsingar um skilarétt eða endurgreiðslur gæti verið gott að kanna málið betur.
Athuga hvort vefverslun sé örugg
Það eru ýmsar leiðir til að athuga hvort vefverslun sé örugg.
Google. Ef fáar leitarniðurstöður koma upp þegar þú leitar að vefverslun er það ástæða til að tortryggja hana.
Scam Adviser. Hversu vel er hægt að treysta vefverslun.
Trustpilot Reviews. Hvað aðrir hafa að segja um fyrirtækið.
Google Safe Browsing. Hversu örugg vefsíða er, hvort sem það er lögmæt síða sem er í hættu eða svikavefsíða.
Öruggar greiðslur
Lestu sms-skilaboð um staðfestingu á netgreiðslum vel og vandlega. Þegar þú notar Visa-kort hjá vefverslunum sem eru með merkið „Verified by Visa“ færð þú sent skilaboð með einnota lykilorði (e. secure code) eða tilkynningu í bankaappi. Þar koma fram upplýsingar um upphæð greiðslunnar, gjaldmiðil og nafn söluaðila. Það er mikilvægt að lesa skilaboðin vel og ganga úr skugga um að allar upplýsingar, eins og upphæð og gjaldmiðill, séu réttar.
Þjónustuaðili
Lögreglan