Fara beint í efnið

Upplýsingar um fylliefni og meðferð

Fylliefni eru efni, efnasamsetningar eða hlutir sem er sprautað eða komið fyrir með öðrum hætti í eða undir húð, í vöðva eða annan vef til útlitsbreytingar, en án sérstaks læknisfræðilegs tilgangs. Efni til húðflúrunar fellur ekki hér undir.

Lesa nánar um fylliefni, reglur og eftirlit Lyfjastofnunnar

Hver má veita meðferð með fylliefni?

Einungis læknum með sérfræðileyfi í húðlækningum og lýtalækningum er heimilt að veita meðferð með fylliefnum. Þó hafa aðrir læknar, tannlæknar og hjúkrunarfræðingar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um fullnægjandi þekkingu og aðstæður á starfsstofu, einnig heimild til að veita meðferð með fylliefnum. Kveðið er á um þetta í reglugerð nr. 170/2025. Landlæknir hefur eftirlit með heilbrigðisstarfsfólki og heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu.

Hverjir mega fá fylliefni?

Óheimilt er að veita börnum yngri en 18 ára meðferð með fylliefnum.

Skylt er að veita þeim sem hyggjast fá meðferð með fylliefnum greinargóðar upplýsingar. Auk þess skal veita viðkomandi skriflegar og munnlegar upplýsingar og liggja skal fyrir upplýst samþykki hans a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir meðferð, svo umhugsunartími gefist frá upplýsingagjöf til meðferðar. Einnig skal taka ljósmynd af meðferðarsvæðinu fyrir og eftir meðferð. Landlæknir hefur eftirlit með heilbrigðisstarfsfólki og heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu.

Leysiefni

Ef af einhverjum ástæðum er talin þörf á að leysa fylliefni upp skal bent á að leysiefni eins og hýalúrónídasi er lyfseðilsskylt lyf og ætti eingöngu að vera gefið af heilbrigðisstarfsmanni sem hefur til þess heimild.

Hafi ávísunarskylt lyf verið nýtt fyrir annan einstakling en því var ávísað á, telst slíkt ólögleg notkun og ætti eftir atvikum að tilkynna til lögreglu.

Atvik og grunur um aukaverkanir

Lyfjastofnun ber að hafa eftirlit með því að fylliefni eins og önnur lækningatæki uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þeirra samkvæmt lögum, reglugerðum og leiðbeiningum framleiðenda. Embætti landlæknis hefur á hinn bóginn eftirlit með starfi heilbrigðisstarfsfólks og skal jafnfram staðesta að rekstur starfsstofu þeirra sem heimild hafa til að veita meðferð með fylliefnum, uppfylli faglegar kröfur, eins og kveðið er á um í lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Vinsamlega athugið að þeir sem upplifa mikil eða langvarandi óþægindi vegna notkunar lækningatækja eða lyfja ættu að hafa samband við lækni eða annað heilbrigðisstarfsfólk til að fá mat á einkennum og ráðleggingar.

Atvikatilkynningar vegna notkunar lækningatækja eru mikilvægar svo bæta megi öryggi. Athygli er vakin á að öllum þeim sem framleiða, selja, dreifa, eiga eða nota lækningatæki og vita um atvik, frávik, galla eða óvirkni, sem kynni að valda eða hefur valdið heilsutjóni eða andláti notanda, ber skylda til að tilkynna Lyfjastofnun um slíkt. Heilbrigðisstarfsfólk, notendur og aðstandendur eru hvattir til að tilkynna öll atvik sem grunur leikur á að tengist lækningatæki og notkun þess.

Tilkynningar um aukaverkanir lyfja eru sömuleiðis mikilvægur hluti heildarmyndar í því sem varðar öryggi lyfja. Því er afar mikilvægt að þær skili sér til lyfjayfirvalda á hverjum stað. Allir geta tilkynnt aukaverkun lyfs til Lyfjastofnunar, jafnvel þótt aðeins sé um grun að ræða.

Tilkynna atvik vegna lækningatækja

Þjónustuaðili

Lyfja­stofnun

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00