Fara beint í efnið

Umsókn um styrk úr sjóðnum

Umsókn um styrk úr Fiskræktarsjóð

Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán eða styrki til verkefna sem hafa það að markmiði að:

  • að efla fiskrækt

  • bæta veiðiaðstöðu

  • styðja við rannsóknir í ám og vötnum

  • að auka verðmæti veiði úr ám og vötnum

Hverjir geta sótt um?

Styrkir Fiskræktarsjóðs eru ætlaðir:

  • veiðifélögum

  • einstaklingum

  • rannsókna- og háskólastofnunum

  • öðrum lögaðilum

Skilyrði fyrir styrkveitingu

  • Fiskræktarsjóður gerir kröfu um að fyrir liggi fjármögnun verkefnisins eða verkhlutans sem sótt er um styrk til.

  • Styrkir eru veittir til eins árs í senn.

  • Ef um framhaldsumsókn er að ræða þarf framvinduskýrsla að fylgja umsókn.

Umsóknir

Umsóknarferli Fiskræktarsjóðs er rafrænt.

  • Umsóknir opna í lok janúar ár hvert og er umsóknarfrestur til og með 1. mars.

  • Allar umsóknir og fylgigögn skulu berast rafrænt í gegnum umsóknargátt sjóðsins.

  • Ekki er tekið við umsóknum eða gögnum í tölvupósti né á pappírsformi.

  • Þegar umsókn hefur verið móttekin fær umsækjandi staðfestingarpóst sendan á skráð netfang.

Mat á umsóknum

Við mat á umsóknum er meðal annars horft til eftirfarandi þátta:

  • nýnæmis í rannsóknum og framkvæmdum til að ná sem best markmiðum sjóðsins,

  • hæfni umsækjenda til að leysa verkefnið, þar á meðal þekkingar, reynslu og aðstöðu,

  • raunhæfni verk-, kostnaðar- og fjármögnunaráætlunar.

Auk þess er litið til samstarfs við fagaðila og þess hvort verkefni séu í þágu heildarhagsmuna.

Úthlutun

Fiskræktarsjóði er heimilt að afla umsagna Fiskistofu um umsóknir um lán eða styrki, þyki þess þörf. Jafnframt er sjóðnum heimilt að ákveða að greiða úthlutanir í áföngum eftir framvindu verkefna.

Fyrir frekari upplýsingar sendið tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is.

Þjónustuaðili

Fiski­stofa