Fara beint í efnið

Tjón af völdum náttúruhamfara

Veitur, hafnir og brýr

Skylt er að vátryggja eftirtalin mannvirki gegn náttúruhamförum þó þau séu ekki brunatryggð:

  • Hitaveitur, vatnsveitur og skolpveitur í eigu sveitarfélaga eða ríkissjóðs.

  • Hafnarmannvirki í eigu sveitarfélaga eða ríkissjóðs.

  • Brýr sem eru 50 metrar eða lengri.

  • Raforkuvirki, þar á meðal dreifikerfi, stíflur og veitumannvirki, í eigu hins opinbera.

  • Síma- og fjarskiptamannvirki í eigu hins opinbera.

  • Skíðalyftur.

Eigendum er skylt að upplýsa NTÍ um vátryggingarfjárhæðir nýrra mannvirkja og breytinga á eldri mannvirkjum fyrir 1. mars ár hvert, annars uppfærir NTÍ vátryggingafjárhæðir frá fyrra ári í samræmi við byggingavísitölu.

Ef ekki hefur verið upplýst um ný mannvirki eða viðbætur telst það ekki vátryggt hjá NTÍ. Þegar uppbygging á sér stað í sveitarfélögum til dæmis á veitukerfum, er mikilvægt að senda upplýsingar reglulega inn til NTÍ til að tryggja að viðkomandi framkvæmdir falli undir vátryggingarvernd NTÍ ef til tjóns kemur.

Iðgjald er 0,02% af vátryggingarfjárhæð. Eigin áhætta er 2% af hverju tjóni, en lágmarks eigin áhætta vegna mannvirkja er 1.000.000 kr.

Eigendur hafa aðgang að sundurliðuðu endurstofnverði á “mínum síðum” og eru beðnir um að tilkynna breytingar og viðbætur á því formi.

Hafðu samband

Sími: 575 3300

Netfang: nti@nti.is

Opnunartími

Mánudaga - fimmtudaga:
9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Heimilisfang

Hlíðarsmári 14

201 Kópavogur