Tímabundinn innflutningur ökutækis á erlendum númerum
Þú getur flutt ökutæki á erlendum skráningarmerkjum tímabundið til Íslands til persónulegra afnota, án þess að greiða full innflutningsgjöld svo framarlega sem ökutækið er:
að hámarki 12 mánuði á Íslandi.
notað til ferðalaga, náms eða vinnu, eða annara persónulegra afnota.
Með ökutæki er átt við skráningarskylt faratæki, til dæmis bifreið, bifhjól, tjaldvagn, fellihýsi og hjólhýsi. Sjá nánar um skráningarskyld ökutæki.
Sá sem flytur inn ökutækið
þarf að vera með fasta búsetu erlendis.
má ekki vera með skráð lögheimili á Íslandi.
Innflytjandi þarf að dvelja á Íslandi á meðan ökutækið er hér, en er þó heimilt að dvelja erlendis í allt að 6 vikur á 12 mánaða tímabili.
Ökutækið
má ekki nota til fólks- eða vöruflutninga í atvinnuskyni.
þarf að vera til persónulegra nota fyrir innflytjanda og samferðamenn hans með fasta búsetu erlendis
þarf að vera komið til Íslands innan eins mánaðar frá komu innflytjanda.
Ef ökutækið er bílaleigubíll, má erlenda bílaleigu bíla á Íslandi í að hámarki:
42 daga í röð í hvert sinn.
183 daga á hverju 12 mánaða tímabili.
Ferli við innflutning ökutækis á erlendum númerum
Framlengd dvöl
Ef þú vilt framlengja dvöl ökutækis á Íslandi þarftu að láta Skattinn vita með því að senda tölvupóst á E9@skatturinn.is.
Ef ökutækið er lengur en í 12 mánuði á Íslandi, þarf að greiða innflutningsgjöld af ökutækinu. Sjá leiðbeiningar um innflutning ökutækis með búslóð eða innflutning á nýju eða notuðu ökutæki.
Lögheimilisskráning á Íslandi
Ef þú skráir lögheimili á Íslandi innan 12 mánaða frá komu til landsins þarf að:
tollafgreiða ökutækið og greiða innflutningsgjöld. Sjá leiðbeiningar um innflutning ökutækis með búslóð eða innflutning á nýju eða notuðu ökutæki.
eða flytja ökutækið úr landi áður en lögheimilisskráning á sér stað.
Ferli að lokinni dvöl á Íslandi
Innan 12 mánaða þarf annaðhvort að:
Þjónustuaðili
Skatturinn