Tilkynna um breytingu, aðvinnslu eða framleiðslu á ökutæki eða eftirvagni
Ef ökutæki er breytt og breytingarna leiða af sér að ökutækið fari í hærri vörugjaldsflokk þarf sá sem breytir að tilkynna breytinguna með því að skila inn vörugjaldsskýrslu til Skattsins.
Þetta á við um bæði ökutæki og eftirvagna.
Skatturinn reiknar út viðbótargjald sem eigandinn þarf að greiða. Breytingin er ekki skráð fyrr en vörugjöldin hafa verið greidd.
Tilkynna um starfsemi sem framleiðir, vinnur að eða breytir ökutækjum
Tilkynna þarf um vörugjaldsskylda starfsemi vegna aðvinnslu og framleiðslu ökutækja.
Ef þú ert að reka verkstæði eða fyrirtæki sem framleiðir, breytir eða vinnur að vörugjaldsskyldu ökutæki eða eftirvagni, þarft þú að tilkynna starfsemina og allar breytingar sem verða á þeirri starfsemi til Skattsins.
Fylla þarf út tilkynningu um vörugjaldsskylda starfssemi (TS-V01) og senda til Skattsins:
eigi síðar en 15 dögum áður en starfsemi hefst.
innan 15 daga frá því að breytingar verða á starfsemi, eftir að skráning hefur farið fram.
Tilkynninguna skal senda til á netfangið: skjalabeidni@skatturinn.is.
Tilkynna breytingar á ökutæki eða eftirvagni
Fylla þarf út og skila vörugjaldsskýrslu innan viku frá sölu eða afhendingu ökutækis eða eftirvagns og eigi síðar en fimm dögum áður en skráning eða almenn skoðun þess fer fram.
Skýrsluna ásamt kvittunum fyrir kostnaði skal senda á netfangið: skjalabeidni@skatturinn.is.
Þjónustuaðili
Skatturinn