Staða
Opið fyrir umsóknir
Frestur til 30. janúar.
Umsóknartímabil
12.09.2025 - 30.01.2026
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Námsstyrkur til framhaldsnáms í Bretlandi
UK-Iceland Explorer námsstyrkir eru ætlaðir íslenskum nemendum sem stefna á framhaldsnám á háskólastigi í Bretlandi.
Staða
Opið fyrir umsóknir
Frestur til 30. janúar.
Umsóknartímabil
12.09.2025 - 30.01.2026
Tegund
Fjármögnun
Námsstyrkur til framhaldsnáms í Bretlandi
Opið fyrir umsóknir / Frestur til 30. janúar.
UK-Iceland Explorer námsstyrkir eru ætlaðir íslenskum nemendum sem stefna á framhaldsnám á háskólastigi í Bretlandi.
Markmiðið með UK-Iceland Explorer námsstyrkjasjóðnum er að efla samstarf milli Bretlands og Íslands á sviði háskólamenntunar. Sjóðurinn styður íslenska nemendur sem vilja stunda nám í Bretlandi, styrkir vísinda- og rannsóknarsamfélag landanna og leggur grunn að frekara tvíhliða rannsóknarsamstarfi milli þeirra.
Styrkir eru veittir til náms á öllum fræðasviðum. Þó er forgangur veittur námi á sviði geimvísinda og skyldra greina.
Hverjir geta sótt um?
Einstaklingar sem stefna á háskólanám til fullrar gráðu í Bretlandi, á meistara- eða doktorsstigi.
Hvernig er sótt um?
Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarform UK-Iceland Explorer Fund. Fylgigögn skal senda á netfangið harpa.s.arnarsdottir@rannis.is
Umsóknarformið má nálgast hér: UK-Iceland Explorer Application Form 2026
Svör við spurningum
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu harpa.s.arnarsdottir@rannis.is eða í síma 515 5875
Þjónustuaðili