Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 02. febrúar 2026
Umsóknartímabil
25.11.2025 - 02.02.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Nám og kennsla
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Verkefnastyrkur Sprotasjóðs leik- grunn- og framhaldsskóla
Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Skólar geta sótt um eða aðrir í samvinnu við skóla
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 02. febrúar 2026
Umsóknartímabil
25.11.2025 - 02.02.2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Nám og kennsla
Tegund
Fjármögnun
Verkefnastyrkur Sprotasjóðs leik- grunn- og framhaldsskóla
Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 02. febrúar 2026
Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er í byrjun hvers árs (lok janúar eða fyrri hluta febrúar).
Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og styður við fjölbreytt verkefni tengd þróun og nýjungum í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda (menntastefna til ársins 2030) og aðalnámskrá.
Hvað er ekki styrkt?
Kjarnastarfsemi eða reglubundinn rekstur.
Vinna starfsmanna í verkefni – nema ljóst þyki af lýsingu að sú vinna falli utan starfssviðs og sé viðbót við starfsskyldu en ekki hluti af henni. Sé verkefnið hluti af vinnu starfsmanns er kostnaður sem af því hlýst skráður sem mótframlag.
Tækjakaup eða uppbygging aðstöðu – nema að takmörkuðu leiti ef verkefni eru háð því og ljóst þyki að sá kostnaður falli ekki undir kjarnastarfsemi eða reglubundinn reksturs.
Bent er á að úthlutaðar upphæðir úr Sprotasjóði síðustu ár hafa almennt verið á bilinu 500 þúsund til 5 milljónir.
Hverjir geta sótt um?
Leik-, grunn- og framhaldsskólar.
Aðrir aðilar en skólar geta sótt um í samstarfi við þá – en í þeim tilfellum verður staðfesting á þátttöku skóla að fylgja umsókn sem fylgiskjal, annars telst umsókn ógild.
Hvernig er sótt um?
Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum. Ekki er nauðsynlegt að umsækjandi (t.d. skóli eða sveitarfélag) sé innskráður notandi í umsóknarkerfinu – en það er heppilegt ef hægt er. Innskráður notandi í umsóknarkerfi getur verið einstaklingur sem tilgreinir annan umsækjanda í umsókn (t.d. skóla eða sveitarfélag).
Umsókn getur verið á íslensku eða ensku.
Svör við spurningum
Tekið er á móti fyrirspurnum á sprotasjodur@rannis.is
Starfsmenn sjóðsins:
Óskar Eggert Óskarsson, s. 515 5839
Ingunn Helga Bjarnadóttir, s. 515 5881
Ráðleggingar til umsækjenda
Kynnið ykkur leiðbeiningar vegna umsókna.
Stofnið umsókn tímanlega.
Ekki skila umsókn á síðasta degi.
Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit yfir styrkt verkefni frá árinu 2022. Með því að velja númer verkefnis fremst í yfirliti fást nánari upplýsingar um valið verkefni.
Almennt á námsgagnagerð betur heima í Þróunarsjóði námsgagna.
Þjónustuaðili