Fara beint í efnið

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 12. september 2023

Umsóknartímabil

08.07.2023 - 12.09.2023

Styrkjaflokkun

Innlent, Rannsóknir

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Styrkir Innviðasjóðs

Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna.

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 12. september 2023

Umsóknartímabil

08.07.2023 - 12.09.2023

Styrkjaflokkun

Innlent, Rannsóknir

Tegund

Fjármögnun

Styrkir Innviðasjóðs

Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 12. september 2023

Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Innviðasjóðs í handbók sjóðsins áður en sótt er um.

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Innviðasjóður veitir eftirfarandi styrktegundir:

  • Tækjakaupastyrkir

  • Uppbyggingarstyrkir

  • Uppfærslustyrkir

  • Aðgengisstyrkir

  • Innviðir á vegvísi

Hverjir geta sótt um?

Háskólar, opinberar rannsóknastofnanir og fyrirtæki.

Hvernig er sótt um?

Umsóknum er skilað gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís - Mínar síður.

Með umsókn þurfa að fylgja (viðaukar):

  • Lýsing á innviðum sem sótt er um.

  • Verðtilboð. Athugið að verð miðast við upphæð án VSK.

  • Staðfesting á mótframlagi. Mótframlag er ekki undanþegið VSK.

  • Ferilskrá forsvarsmanns umsóknar og tengiliða meðumsækjenda.

  • Staðfesting á þátttöku fyrir allar þær stofnanir sem standa að umsókninni.

Athugið að engin önnur fylgigögn skulu fylgja umsókn.

Svör við spurningum

Allar fyrirspurnir skal senda á netfangið innvidasjodur@rannis.is

Umsókn má vera á íslensku eða ensku.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands