Sjóður
Íþróttasjóður
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Sjá lýsingu
Styrkjaflokkun
Innlent, Æskulýðsstarf og íþróttir
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Verkefnastyrkur Íþróttasjóðs
Íþróttasjóður veitir styrki til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana, til útbreiðslu- og fræðsluverkefna, svo og til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi.
Sjóður
Íþróttasjóður
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Sjá lýsingu
Styrkjaflokkun
Innlent, Æskulýðsstarf og íþróttir
Tegund
Fjármögnun
Verkefnastyrkur Íþróttasjóðs
Lokað fyrir umsóknir / Sjá lýsingu
Umsóknarfrestur er 1. október 2026, kl 15:00.
Styrkir Íþróttasjóðs eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig eru styrkir til útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.
Hverjir geta sótt um?
Íþrótta- og ungmennafélög og þau sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig fyrir þau sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta og lýðheilsu.
Hvernig er sótt um?
Umsókn um styrk úr Íþróttasjóði skal skila í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.
Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum.
Mikilvægt er að hafa í huga að við gerð kostnaðaráætlunar að í eyðublaði er átt við heildarkostnað verkefnisins. Ef sótt er um styrk eða framlög til annarra skal tilgreina það í umsókn.
Mikilvægt er að fara vel yfir kostnaðaryfirlit áður en umsókn er send inn.
Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.
Svör við spurningum
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu ithrottasjodur@rannis.is eða í síma 515 5833. Umsjónarmaður sjóðsins er Andrés Pétursson.
Umsækjendur eru hvattir til að byrja tímanlega og senda ekki umsókn á síðasta degi.
Þjónustuaðili