Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 07. febrúar 2025

Umsóknartímabil

17.12.2024 - 07.02.2025

Styrkjaflokkun

Innlent, Menning og listir, Nýsköpun, Rannsóknir, Umhverfismál

Tegund

Fjármögnun

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands

Sumarvinna fyrir háskólanema við nýsköpun

Styrkir til háskóla, fyrirtækja og rannsóknastofnana til að ráða stúdenta í grunn- og meistaranámi til sumarvinnu við rannsókna- og þróunarverkefni.

Staða

Lokað fyrir umsóknir

Frestur var til 07. febrúar 2025

Umsóknartímabil

17.12.2024 - 07.02.2025

Styrkjaflokkun

Innlent, Menning og listir, Nýsköpun, Rannsóknir, Umhverfismál

Tegund

Fjármögnun

Sumarvinna fyrir háskólanema við nýsköpun

Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 07. febrúar 2025

Styrkurinn greiðir laun nema, 340.000 á mánuði, að hámarki í 3 mánuði. Háskóli, rannsóknarstofnun eða fyrirtæki sér fyrir aðstöðu og efniskostnaði.

Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífinu og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.

Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna. Stjórn er heimilt að veita forgang verkefnum taki fyrirtæki eða aðrir aðilar þátt í kostnaði.

Hverjir geta sótt um?

  • Sérfræðingar innan háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir og þróun

  • Háskólanemar í grunn- og meistaranámi

  • Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna

Hvernig er sótt um?

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.

  • Umsjónarmenn geta sótt um án þess að tilgreina nemanda.

  • Nemendur þurfa að hafa umsjónarmann tilgreindan til að sækja um styrk.

  • Háskólanemar í grunn- og meistaranámi geta sótt um styrk óháð landi háskóla.

Svör við spurningum

  • Sendið fyrirspurnir til Nýsköpunarsjóðs á netfangið: nsn@rannis.is.

  • Símatími er á mánudögum - fimmtudaga frá kl 10-12 í síma 515 5800.

Styrkþegar athugið - skil á lokaskýrslu !

Þær skýrslur sem skilað er fyrir lokafrest, 26. september 2025 kl. 15:00 koma til greina við tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.

Þjónustuaðili

Rannsóknamið­stöð Íslands