Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 10. desember 2025
Umsóknartímabil
04.10.2025 - 10.12.2025
Styrkjaflokkun
Innlent, Nýsköpun, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Styrkur til menntarannsókna
Markmiðið er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja framkvæmd menntastefnu.
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 10. desember 2025
Umsóknartímabil
04.10.2025 - 10.12.2025
Styrkjaflokkun
Innlent, Nýsköpun, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Styrkur til menntarannsókna
Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 10. desember 2025
Menntarannsóknasjóður mennta- og barnamálaráðherra styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs sem byggja á samstarfi rannsakenda og fagfólks í skóla- og frístundastarfi
Hverjir geta sótt um?
Rannsakendur á sviði menntavísinda við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir geta sótt um verkefnisstyrki. Rannsakendur geta myndað rannsóknarhóp með samstarfsfólki við aðrar rannsóknastofnanir og/eða fagfólki á sviði menntamála, s.s. við leik-, grunn- og framhaldsskóla, sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki.
Hvernig er sótt um?
Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
Til að nálgast umsóknarformið þarf umsækjandi að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum.
Leiðbeiningar um innskráningu og hvernig ný umsókn er stofnuð (ef opið er fyrir umsóknir).
Umsóknir geta verið á íslensku eða ensku.
Svör við spurningum
Sendið fyrirspurnir til Menntarannsóknasjóðs á netfangið: menntasjodur@rannis.is
Umsækjendur skulu kynna sér vel úthlutunarreglur og skilmála Menntarannsóknasjóðs.
Þjónustuaðili