Skilagjald er lagt á drykkjarvörur í einnota umbúðum úr áli, stáli, gleri og plastefni.
EORI númer er ekki er notað á Íslandi.
Gjaldskyldar vörur
Skilagjald
Greiða þarf skilagjald af:
innfluttum drykkjarvörum til eigin nota eða endursölu
drykkjarvörum sem eru framleiddar eða átappaðar hér á landi
Undir þetta falla allar drykkjarvörur í einnota umbúðum sem eru seldar hér á landi og flokkast undir vöruliði 2009, 2201, 2202, 2203, 2204, 2205, 2206 og 2208 í tollskrá.
Þar á meðal eru:
Ávaxtasafi og gosdrykkir
Vatn
Bjór og léttvín
Vín og sterkir drykkir
Ekki þarf að greiða af drykkjarvörum sem eru fluttar úr landi.
Umsýsluþóknun
Auk skilagjalds þarf að greiða umsýsluþóknun. Fjárhæð umsýsluþóknunar er misjöfn eftir tegundum umbúðum. Gjöldin mynda ekki gjaldstofn við álagningu vörugjalds eða sambærilegra framleiðslugjalda.
Virðisaukaskattur reiknast af skilagjaldi og umsýsluþóknun en ekki af öðrum aðflutningsgjöldum.
Gjalddagar
Innflutningur:
Greitt er við tollafgreiðslu.
Framleiðsla og átöppun:
Greitt er á tveggja mánaða fresti.
Gjalddagi er 28. dagur annars mánaðar eftir lok hvers tímabils. Ef gjalddagi fellur á helgidag eða frídag færist hann á næsta virka dag.
Tímabil | Gjalddagi |
|---|---|
Janúar – febrúar | 28. apríl |
Mars – apríl | 28. júní |
Maí – júní | 28. ágúst |
Júlí – ágúst | 28. október |
September – október | 28. desember |
Nóvember – desember | 28. febrúar |
Álag á vangreitt skilagjald
Sé skilagjald ekki greitt á tilskildum tíma bætist við álag upp á 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.
Álag er samkvæmt 7. gr. reglugerðar nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur.
Þjónustuaðili
Skatturinn