Sækja um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna kaupa á búnaði slökkviliða
Sveitarfélög og stofnanir í þeirra eigu sem sjá um brunavarnir eða mengunarvarnir geta fengið virðisaukaskatt (VSK) af innflutningi eða kaupum á tækjum endurgreiddan alfarið.
Þetta á við um kaup á til dæmis:
dælubifreiðum, tækjabifreiðum, vatnsflutningabifreiðum, björgunarbifreiðum líkt og mannflutningabifreiðum og stiga- og kranabifreiðum.
slökkvidælum, reykblásurum, rafstöðvum, slöngum, börkum, tækjum og öðrum tilheyrandi búnaði.
klippum, glennum, tjökkum, dælum og öðrum tilheyrandi sérhæfðum björgunarbúnaði sem notaður er við björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum.
ytri hlífðarfatnaði vegna slökkvistarfa og mengunaróhappa sem og reykköfunartækjum og tækjabúnaði þeim tengdum.
tækjabúnaði sem notaður er vegna mengunaróhappa og fjarskiptabúnaði fyrir slökkvilið sem og boðtækjum, talstöðvum og farsímum.
Skilyrði og fylgigögn
Sá sem seldi vöruna eða þjónustuna verður að hafa verið skráður á virðisaukaskattsskrá þegar viðskiptin áttu sér stað.
Fylgigögn
Umsókn í tveimur eintökum
Frumrit reikninga ásamt skýru afriti. Reikningarnir verða að vera stílaðir á umsækjandann og VSK verður að vera sérstaklega tilgreindur.
Senda umsókn
Þegar þú hefur fyllt út eyðublaðið og gengið úr skugga um að öll fylgiskjöl séu tilbúin sem viðhengi, sendir þú tölvupóst á netfangið:
Þjónustuaðili
Skatturinn