Áætlanakerfi ríkisins, Akra, einfaldar og samræmir áætlanagerð stofnana og styður betri yfirsýn og ákvarðanatöku.
Fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, Orri, styður við rekstur ráðuneyta og stofnana á sviði bókhalds, launa og mannauðsmála.
TBR, eða Tekjubókhaldskerfi ríkisins, er kjarnakerfi fyrir innheimtu ríkisins.
Vefurinn opnirreikningar.is veitir aðgang að upplýsingum um ráðstöfun opinberra fjármuna og stuðlar að auknu gagnsæi í rekstri ríkisins.
Vefurinn rikisreikningur.is veitir aðgengilegar og skýrar upplýsingar um fjármál ríkisins. Markmiðið er að auðvelda almenningi að skilja hvernig opinberu fé er ráðstafað.
Vefurinn mannaudstorg.is er sameiginlegur vettvangur fyrir upplýsingar og þjónustu á sviði mannauðsmála hjá ríkinu.
Vefurinn Starfatorg.is er sameiginlegur vettvangur fyrir auglýsingar lausra starfa hjá ríkinu. Markmið hans er að tryggja gagnsæi og jafnt aðgengi að opinberum störfum.
Elfur er aðgangsstýrður vefur og þjónustulag sem styður við örugga og skilvirka miðlun gagna milli Fjársýslunnar, stofnana og annarra samstarfsaðila.
Með kerfinu er unnt að skrá alla skuldbindandi samninga jafnóðum og þeir eru undirritaðir og halda utan um þá á einum stað.
Á utbodsvefur.is getur þú fundið öll opinber útboð á Íslandi.
Á vefnum www.midlaegirsamningar.is finnur þú upplýsingar um miðlæga samninga Fjársýslunnar sem eru í gildi.