Starfatorg
Vefurinn Starfatorg.is er sameiginlegur vettvangur fyrir auglýsingar lausra starfa hjá ríkinu. Markmið hans er að tryggja gagnsæi og jafnt aðgengi að opinberum störfum.
Á vefnum eru birtar auglýsingar um störf hjá stofnunum í A‑hluta ríkissjóðs. Birting á Starfatorgi er liður í að uppfylla kröfur laga og reglna um opinbera ráðningarferla, þar sem gert er ráð fyrir að auglýsa skuli laus störf opinberlega.
Vefurinn styður samræmda og skýra framsetningu upplýsinga um laus störf. Hann auðveldar umsækjendum að finna og sækja um störf og tryggir að upplýsingar séu aðgengilegar öllum á einum stað.
Með Starfatorgi er stuðlað að faglegum og gagnsæjum ráðningarferlum í samræmi við lög og reglur um ráðningar í opinberri þjónustu.
