Miðlægir samningar.is
Á vefnum www.midlaegirsamningar.is finnur þú upplýsingar um miðlæga samninga Fjársýslunnar sem eru í gildi.
Vefurinn er ætlaður opinberum kaupendum sem vilja nýta miðlæga samninga við innkaup.
Hann nýtist líka fyrirtækjum sem eiga aðild að samningunum.
Á vefnum getur þú
flett upp samningum sem eru í gildi
séð hvaða vörur eða þjónusta er í boði
kynnt þér skilmála og gildissvið samninga
séð hvaða birgjar eiga aðild að samningi
fundið tengiliði samnings
séð hvernig kaup fara fram innan samnings
Upplýsingar á hverri samningssíðu
Á hverri samningssíðu kemur fram:
gildistími samnings
hvaða birgjar eru innan samnings
leiðbeiningar um notkun samningsins
hvernig kaup fara fram
upplýsingar um vörur eða þjónustu sem samningurinn nær til
Gerð miðlægra samninga Upplýsingar um hvernig miðlægir samningar eru gerðir má finna hér.
Aðgangur að Miðlægu samningakerfi Fjársýslunnar
Með aðgangi fyrir opinbera kaupendur að samningakerfi Fjársýslunnar er hægt að skoða vöruflokka og kjör rammasamninga og gagnvirkra innkaupakerfa.
Til að skrá þig inn:
Veldu rammasamning
Farðu í flipann „Skoða kjör“
Skráðu þig inn
Veldu „Nýskráning“ ef þú hefur ekki skráð þig inn áður
Hver fær aðgang?
Starfsfólk A-hluta stofnana fær aðgang að samningakerfinu
Starfsfólk B-hluta stofnana getur sótt um aðild
Seljendur og birgjar hafa ekki aðgang að læsta svæðinu
Aðgangur að miðlæga samningakerfi
Með aðgangi að Miðlæga samningakerfi Fjársýslunnar er hægt að skoða vöruflokka og kjör rammasamninga og gagnvirkra innkaupakerfa.
Nýskráning í miðlæga samningakerfi Fjársýslunnar
Við nýskráningu berst beiðni til Fjársýslunnar um aðgang.
Um sólarhring eftir að einstaklingur nýskráir sig fær viðkomandi tölvupóst þar sem aðgangur er veittur inn í kerfið, nema umsókn sé hafnað.
Starfsmenn A-hluta stofnana fá aðgang að kerfinu. A-hluta stofnanir eru reknar af stærstum hluta fyrir almannafé. Sjá A-hluta stofnanir.
Starfsmenn B-hluta stofnana sækja um aðild.
Þeir sem eru aðilar (kaupendur) að rammasamningakerfi Fjársýslunnar geta skoðað kjör hvers samnings með innskráningu.
Athugið að seljendur/birgjar hafa ekki aðgang að læsta svæðinu.
Innskráning
Velja rammasamning.
Fara í flipann „Skoða kjör“.
Skrá sig inn.
Ef viðkomandi hefur ekki skráð sig inn áður er valin „Nýskráning".
Þegar að kaupandi hefur slegið inn upplýsingar fær hann aðgang er umsókn hefur verið samþykkt.
Ef einhver vandamál verða við innskráningu má hafa samband við Fjársýsluna.
