Utbodsvefur.is
Á utbodsvefur.is getur þú fundið öll opinber útboð á Íslandi.
Vefurinn sýnir útboð frá opinberum aðilum á einum stað.
Þar getur þú skoðað útboð, sótt gögn í útboðskerfi kaupanda og fylgst með breytingum.
Ábyrgðaraðili vefsins er Fjársýslan Það sem þú getur gert á útboðsvefnum
Á útboðsvefnum getur þú:
leitað að útboðum eftir efni, dagsetningu eða leitarorði
skoðað útboð sem eru opin
sótt útboðsgögn úr útboðskerfum kaupanda
Fyrir hverja er útboðsvefurinn?
Útboðsvefurinn er fyrir:
fyrirtæki sem vilja taka þátt í opinberum útboðum
starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem vinnur að innkaupum
almenning sem vill kynna hvað er verið að kaupa í gegnum opinber innkaup
Allir geta skoðað almennar upplýsingar á vefnum án innskráningar.
Taka þátt í útboði
Til að taka þátt í útboði þarft þú að:
Finna útboð sem hentar þínu fyrirtæki eða starfsemi.
Skrá þig inn í útboðskerfi kaupanda
Sækja útboðsgögn.
Kynna þér kröfur, skilmála og skilafrest.
Undirbúa tilboð samkvæmt leiðbeiningum.
Skila tilboði innan frestsins.
Mikilvægt er að fylgja öllum skilmálum sem koma fram í útboðsgögnum.
Sem dæmi má sjá leiðbeiningar Fjársýslunnar., hvernig á að taka þátt í útboði.
Af hverju er útboðsvefurinn mikilvægur?
Útboðsvefurinn styður við gagnsæi og jafnan aðgang að opinberum verkefnum.
Vel skipulögð og opin útboð stuðla að:
heilbrigðri samkeppni
betri nýtingu á opinberu fé
auknu trausti til opinberra innkaupa
betri þekkingu fyrir kaupendur og bjóðendur á innkaupaferlinu.
Frekari upplýsingar
Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að getur þú:
haft samband við þann aðila sem auglýsir útboðið
skoðað leiðbeiningar sem fylgja útboðinu
Tæknileg vandamál með utbodsvefur.is
Má senda á fjarsyslan@fjarsyslan.is
