Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Orri

Orri er fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins. Kerfið styður ráðuneyti og stofnanir í bókhaldi, launavinnslu og mannauðsmálum og er eitt af lykilupplýsingakerfum ríkisins.

Orri tryggir samræmd og áreiðanleg gögn þvert á ríkisaðila. Það stuðlar að skilvirkari vinnslu upplýsinga og dregur úr tvískráningu.

Kerfið er byggt á Oracle E-Business Suite og samanstendur af tengdum kerfishlutum sem styðja við helstu ferla í fjármálum, launum og mannauðsmálum.

Fjársýsla ríkisins rekur Orra og veitir þjónustu við þær stofnanir sem nota kerfið. Starfsemin byggir meðal annars á lögum um opinber fjármál nr. 123/2015, þar sem lögð er áhersla á áreiðanlegar, greinargóðar og tímanlegar upplýsingar um fjármál ríkisins.

Nánari upplýsingar má finna í lögum um opinber fjármál nr. 123/2015.

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500