Elfur - Stafrænn vettvangur
Elfur er aðgangsstýrður vefur og þjónustulag sem styður við örugga og skilvirka miðlun gagna milli Fjársýslunnar, stofnana og annarra samstarfsaðila.
Í Elfur geta stofnanir sent inn og nálgast gögn á einum stað. Vefurinn er samþættur við grunnkerfi Fjársýslunnar og styður þannig við örugga og samfellda þjónustu.
Elfur er í þróun og nýjar lausnir bætast við reglulega.
Hvað getur þú gert í Elfur?
Í Elfur getur notandi meðal annars:
unnið með gögn áður en þeim er skilað
sannreynt gögn með villuprófunum áður en þeim er skilað
haldið utan um upplýsingar um samninga og önnur verkefni
Auðkenning og innskráning
Notandi skráir sig inn í Elfur með rafrænum skilríkjumi í gegnum auðkenningarþjónustu Ísland.is.
Ávinningur af Elfur
Markmiðið með Elfur er að:
einfalda ferla
minnka pappírsnotkun
bæta gæði gagna
gera samskipti og gagnaskil skilvirkari
spara tíma hjá stofnunum, Fjársýslunni og samstarfsaðilum
Um nafnið Elfur
Elfur er íslenskt kvenkynsnafn sem merkir fljót eða vatnsfall. Nafnið er dregið af samnefninu elfur, sem er gamalt íslenskt orð yfir stórt vatnsfall og vísar til flæðis og tenginga milli staða.
Merking nafnsins endurspeglast í hlutverki kerfisins. Líkt og vatnsfall flytur vatn milli staða, styður Elfur við öruggt og samfellt flæði gagna milli Fjársýslunnar, stofnana og samstarfsaðila. Nafnið undirstrikar þannig markmið kerfisins, það er að tengja aðila saman og tryggja skilvirka miðlun upplýsinga.
