Opnir reikningar ríkisins
Vefurinn opnirreikningar.is veitir aðgang að upplýsingum um ráðstöfun opinberra fjármuna og stuðlar að auknu gagnsæi í rekstri ríkisins. Þar má skoða reikninga sem ráðuneyti og ríkisstofnanir í A‑hluta ríkissjóðs hafa greitt.
Gögnin eru uppfærð mánaðarlega. Hægt er að leita eftir stofnun, birgja, tegund kostnaðar og tímabili greiðslu.
Á vefnum birtast greiðslur fyrir vörur og þjónustu sem fara í gegnum viðskiptaskuldakerfi Orra. Launagreiðslur, styrkir og sumar aðrar greiðslur eru ekki birtar.
Við birtingu upplýsinga er farið eftir lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, upplýsingalög nr. 140/2012 og stjórnsýslulög nr. 37/1993. Viðkvæmar upplýsingar og gögn sem varða einkahagi einstaklinga eða fyrirtækja eru ekki birt.
