Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Öryggisáætlun sjófarenda

Styrkir til hugvitsmanna

til verkefna sem ætlað er að auka öryggi sjófarenda

Ár hvert veitir Samgöngustofa styrk/styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda. 

Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um. 

Umsókn skal senda á netfangið styrkur@samgongustofa.is og skal umsókninni fylgja útfyllt eyðublað sem finna má hér á Word formi og hér á pdf formi. Einnig skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu í heild sem og greinargerð fyrir því hvaða hluta verkefnisins styrkurinn mun nýtast í. Nánar má finna um styrkinn hér að neðan.

Umsóknarfrestur 2023 er til 15. maí







Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa