Línuívilnun
Dagróðrabátar á línuveiðum geta að uppfylltum reglum um línuívilnun landað afla umfram aflamark í þorski, ýsu og steinbít. Þessi heimild er þó bundin við ákveðið hámark í hverri tegund og skilgreind tímabil.
Reglur:
Ekki mega önnur veiðarfæri vera um borð í bátnum.
Hafi línan verið beitt í landi má landa 20% umfram þann afla sem reiknast til kvóta.
Hafi línan verið stokkuð upp í landi má landa 15% umfram þann afla sem reiknast til kvóta.
Báturinn komi til löndunar innan 24 klst. frá upphafi veiðiferðar.
Sjálfvirkt tilkynningakerfi bátsins þarf að vera virkt.
Útgerðaraðili tilkynni fyrirfram um upphaf þess tímabils sem línuveiðar með línu sem beitt er í landi eða sem stokkuð er upp í landi eru fyrirhugaðar.
Tilkynningin gildir þar til útgerðaraðilinn tilkynnir um annað.
Senda á tilkynningununa með tölvupósti á linuivilnun@fiskistofa.is og þarf skipaskrárnúmer að fylgja.
Skipstjóri þarf að tryggja við vigtun og skráningu aflans á hafnarvog að veiðarfærið landbeitt lína eða línutrekt sé skráð sem veiðarfæri aflans í aflaskráningarkerfið GAFL
Athygli er vakin á að umsókn í tölvupósti telst aðeins móttekin ef sjálfvirk staðfesting Fiskistofu á móttökunni hefur borist sendandanum.
Þjónustuaðili
Fiskistofa