Framkvæmdir sem nær eru veiðivatni en 100m, sem áhrif geta haft á lífríki vatnsins eða aðstöðu til veiði, eru háðar leyfi Fiskistofu.
Dæmi um framkvæmdir sem geta verið háðar leyfi Fiskistofu
bakkavörn
efnistaka
fiskvegagerð (laxastigar)
vegagerð (brýr, ræsi)
veiðistaðagerð
virkjun
Leyfi Fiskistofu skal aflað áður en ráðist er í framkvæmd.
Fylgigögn umsóknar
Umsögn sérfræðings vegna hugsanlegra áhrifa framkvæmdarinnar á lífríki þess.
Mat á því hvort framkvæmd samræmist lögum um stjórn vatnamála.
Umsögn viðkomandi veiðifélags/veiðiréttareiganda vegna hugsanlegra áhrifa á aðstöðu til veiði.
Upplýsingar um staðsetningu við veiðivatn (kort, hnit).
Við afgreiðslu umsókna metur Fiskistofa hvort framkvæmdir séu líklegar til að valda tjóni á lífríki fiskstofna í ferskvatni eða aðstöðu til veiði. Fiskistofa getur farið fram á að framkvæmdaraðili láti gera líffræðilega úttekt á veiðivatni áður afstaða er tekin til leyfisveitingar.
Hafa þarf í huga
Uppfylla þarf lagaskilyrði gagnvart viðkomandi landeigendum áður er framkvæmd hefst.
Framkvæmdir við veiðivötn kunna að vera háðar framkvæmdaleyfi viðkomandi sveitafélags.
Framkvæmdir innan friðlýstra svæða eru háðar leyfi Umhverfis- og orkustofnunar.
Gild leyfi
Leyfi í gildi má sjá á Hafsjánni

Þjónustuaðili
Fiskistofa