10000 leitarniðurstöður
Lyfsöluleyfi veitir handhafa þess rétt til að kaupa lyf af heildsöluleyfishöfum og afhenda lyf gegn lyfjaávísun, í lausasölu og fleira.
Vegabréf fyrir útlending er fyrir þá sem eru löglega búsettir hér á landi og geta ekki fengið ferðaskilríki frá heimaríki eða eru ríkisfangslausir.
Skylt er að forskrá bifreið, bifhjól, torfærutæki, vinnuvél, rafknúið dráttartæki og dráttarvél áður en ökutækin eru tekin í notkun.
Hreyfihamlað fólk, blindir og lífeyrisþegar geta sótt um ýmsa styrki til að kaupa eða reka bíl.
Ef hjón eru sammála um að óska eftir lögskilnaði, geta þau fengið hann að lágmarki sex mánuðum eftir að skilnaður að borði og sæng var veittur.
Einstaklingar sem hafa ráðið sig í vinnu á Íslandi geta sótt um dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku.
Sveitarfélög geta veitt fólki tímabundna fjárhagslega aðstoð til að aðstoða fólk við að bjarga sér sjálft. Mismunandi reglur gilda hjá sveitarfélögum.
Lögráðamanni ber að haga störfum sínum í þágu hins ólögráða eins og best hentar hag hans hverju sinni.
Barn á lögum samkvæmt rétt á forsjá foreldra sinna, annars eða beggja. Með orðinu forsjá er lögð áhersla á umönnunar- og verndarþátt foreldraskyldna.
Heimilisuppbót er viðbót sem bætist ofan á greiðslur þeirra sem eru á örorkulífeyri, sjúkra- og endurhæfingargreiðslum eða ellilífeyri og búa einir.