10000 leitarniðurstöður
Með nauðungarvistun er átt við þegar sjálfráða einstaklingur er annaðhvort færður nauðugur á sjúkrahús eða haldið þar nauðugum.
Í hverju félagi geta raunverulegir eigendur verið einn eða fleiri og eru félög sjálf ábyrg fyrir því að afla upplýsinga um raunverulega eigendur sína.
Atvinnurekendur þurfa að tilkynna um öll vinnuslys sem verða til þess að starfsmaður verður óvinnufær í einn eða fleiri daga umfram þann dag sem slysið varð.
Vottorð fyrir einstakling sem tilgreinir í hvaða landi eða löndum viðkomandi hefur átt lögheimili.
Rétturinn til einkamerkis gildir í átta ár. Hægt er að framlengja réttinn þegar 3 mánuðir eru eftir af gildistíma og skal þá greiða réttindagjald.
Ef þú hefur orðið fyrir tjóni á eignum vegna náttúruhamfara gætir þú átt rétt á bótum.
Sjómenn á lögskráðu íslensku skipi eða skipi gert út af íslenskum aðilum í 25 ár eða lengur geta átt rétt á snemmtöku ellilífeyris frá 60 ára aldri.
Með bráðamengun er átt við skyndilegan atburð sem krefst tafarlausra viðbragða.
Við ákveðnar aðstæður getur eftirlifandi maki átt rétt á framlengdum dánarbótum.
Bráðabirgðagreiðslumat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar má nota til að áætla greiðslugetu einstaklinga miðað við uppgefið eigið fé.