Korta- eða bankaupplýsingar misnotaðar
1. Láttu bankann vita
Ef þú sérð kortafærslu sem þú kannast ekki við er mikilvægt að loka kortinu eða frysta það sem fyrst og hafa samband við bankann. Því fyrr sem þú bregst við, því meiri líkur eru á að hægt sé að gera eitthvað.
2. Tilkynna til lögreglu
Þú ættir að tilkynna kortamisnotkun til lögreglu, sama hver upphæðin er. Þótt upphæðin sé lág eða ekki er hægt að endurheimta peninginn geta þær upplýsingar hjálpað lögreglunni við að finna mynstur í hegðun svikara.
Það hjálpar til við rannsókn málsins að gefa lögreglunni leyfi í tilkynningunni til að nálgast upplýsingar frá bankanum. Þú getur tilkynnt hér eða á næstu lögreglustöð.
Ef langur tími er liðinn frá brotinu verður það skoðað í samhengi við svipuð brot til að greina mynstur og reyna að stöðva svikarana að baki því.
Ráð til að koma í veg fyrir stuld á kortaupplýsingum
Í flestum netbönkum er hægt að skoða hvaða tæki eru með heimild til innskráningar í appi með lífkennum. Ef þar eru skráð tæki sem þú kannast ekki við skaltu fjarlægja þau strax.
Aldrei gefa upp kortanúmer eða leynikóða nema þú sért að versla á öruggri síðu. Aldrei taka mynd af korti með upplýsingum og senda einhverjum.
Aldrei deila öryggisupplýsingum með öðrum, jafnvel þótt þú þekkir (eða haldir að þú þekkir) þann sem þú ert að senda til. Bankar, stofnanir og heiðvirð fyrirtæki biðja ekki um viðkvæmar upplýsingar eins og lykilorð, leyninúmer eða aðrar persónuupplýsingar í gegnum tölvupóst eða smáskilaboð.
Skoðaðu vel tölvupósta og skilaboð sem biðja um persónulegar upplýsingar eða millifærslur. Fáðu staðfestingu á sannleiksgildi með öðrum samskiptaleiðum, til dæmis símtali.
Ekki samþykkja auðkenningu með rafrænum skilríkjum nema þú sért í raun að nota þau til að skrá þig inn.
Aldrei slá inn notendanafn eða lykilorð á vefsíður sem poppa upp eftir að þú smellir á hlekk.
Notaðu margþátta auðkenningu á alla reikninga þína á netinu, eins og tölvupóst, samfélagsmiðla og aðrar þjónustur.
Notaðu mismunandi örugg lykilorð eða lykilorðaforrit.
Vertu með nýjustu uppfærslur á öllum tækjum og hugbúnaði.
Þjónustuaðili
Lögreglan