Fara beint í efnið

Innheimta á kröfum Fjármálaeftirlitsins

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra  sér um innheimtu á eftirfarandi kröfum Fjármálaeftirlitsins:

  • Dagsektum og févíti

  • Stjórnvaldssektum sem Fjármálaeftirlitið leggur á einstaklinga og lögaðila

  • Sáttarboðum og sáttargerðum sem Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gera

  • Eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins sem leggst á eftirlitsskylda aðila 

Innheimtuferli 

Þegar krafa er stofnuð birtist hún í heimabanka skuldara.  Innheimtubréf eru send í pósthólf viðkomandi á island.is.  
Ef krafan fæst ekki greidd 30 dögum eftir að innheimtubréf hefur verið sent og ekki er samið um kröfuna er greiðsluáskorun birt af stefnuvotti. 

Eftirfarandi úrræði koma til, til að knýja á um greiðslur:

Greiðsludreifing

Beiðni um greiðsludreifingu þarf að berast skriflega á  netfangið innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til embættis sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Lágmarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna í greiðsludreifingu er 10.000 krónur.

Athugið að hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990.   Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Þá er einnig hægt að greiða með greiðslukorti.

Kæruleiðir

Málsaðili, sem ákvörðun um févíti eða dagsektir beinist að, hefur sjö daga til þess að koma að skriflegum andmælum áður en stjórn Fjármálaeftirlitsins tekur ákvörðun.  Ef hann vill ekki una ákvörðuninni getur hann höfðað mál fyrir dómstólum innan þriggja mánaða frá því að honum var kynnt ákvörðunin.  

Hafi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins verið skotið til dómstóla skal senda staðfestingu um það til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra á netfangið innheimta@syslumenn.is

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15