Hvalveiðileyfi
Atvinnuvegaráðuneytið gefur út leyfi til hvalveiða í fimm ár í senn, 2025-2029. Áður en leyfi er veitt á ráðherra að leita til umsagnar Hafrannsóknarstofnunnar.
Skip sem uppfylla skilyrði sem sett eru í reglugerð um hvalveiðar með síðari breytingum og reglugerð um veiðar á langreyðum, geta fengið leyfi til hvalveiða í íslenskri fiskveiðilandhelgi.
Skilyrði fyrir leyfi til hrefnuveiða
Til þess að fá leyfi til hrefnuveiða þurfa skip og áhafnir þeirra að uppfylla ákveðin skilyrði samkvæmt ákvæðum reglugerðar um hvalveiðar.
Kröfur til áhafnar og skyttna:
að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum,
skyttur hafi lokið viðurkenndu námskeiði í meðferð skutulbyssa og sprengiskutla,
skyttur hafi gild skotvopnaleyfi.
Veiðibúnaður skal vera þannig úr garði gerður að dýr aflífist samstundis eða á sem skemmstum tíma og með sem minnstum þjáningum.
Kröfur um veiðibúnað:
riffill til endurskots ef þörf krefur,
vélknúin vinda til að draga dýr að skipi,
skotlínur sem standast tilskilið álag,
viðeigandi fjöðrunarbúnaður,
samþykktar skutulsprengjur af gerðinni hvalgranat-99
Óheimilt er að nota skutul án sprengju eða án þess að skotlína sé tengd skipinu.
Skilyrði fyrir leyfi til veiða á langreyðum
Til þess að fá leyfi til veiða á langreyðum þurfa skip og áhafnir þeirra að uppfylla ákveðin skilyrði samkvæmt ákvæðum reglugerðar um veiðar á langreyðum.
Kröfur til áhafnar og skyttna:
Að lágmarki þrír úr áhöfn skulu hafa reynslu af hvalveiðum.
Skyttur skulu hafa lokið viðurkenndri þjálfun í:
meðferð hvalveiðibyssu,
meðferð sprengiskutla,
aflífunaraðferðum við hvalveiðar,
líffræði og atferli hvala,
regluverki um hvalveiðar.
Kröfur um veiðibúnað:
Skip sem stunda veiðar á langreyðum skulu vera búin viðurkenndum veiðibúnaði, þar á meðal:
hvalveiðibyssu,
skotlínum sem standast álag við veiðar,
skotlínukörfu,
miði með upplýstum punkti.
Einungis má nota skutulsprengjur af gerðinni hvalgranat-99. Búnaðurinn skal vera þannig úr garði gerður að hann stuðli að tafarlausri eða eins skjótri aflífun og mögulegt er.
Tilkynna á til Fiskistofu um breytingar á veiðibúnaði.

Þjónustuaðili
Fiskistofa