Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fjárfestingasvik

Fjárfestingasvikarar notfæra sér traust fólks til að ginna það í fjárfestingar á hlutabréfum eða rafmyntum á fölskum forsendum. Oft sendir fólk stórar upphæðir til netsvikara sem lofa öllu fögru en þegar það vill taka inneignina út er það ekki hægt eða inneignin hverfur skyndilega.

Hvernig virka fjárfestingasvik?

Svikin eru oft auglýst á samfélagsmiðlum, stundum af þekktum einstaklingum, og svikararnir hringja jafnvel beint í fólk. Fjárfestingasvik eru líka stundum hluti af ástarsvikum. Þegar svikarinn hefur byggt upp traust í sambandinu býður hann upp á ráð við fjárfestingar eða heldur því fram að hann viti af gróðatækifærum.

Svikararnir koma fram eins og vinalegir ráðgjafar sem vilja ekkert frekar en að hjálpa fólki að ávaxta peningana sína. Þeir nota flókin og fagleg orð, bjóða alls kyns fjárfestingar og rafmyntir koma oft við sögu. Vefsíðurnar sem fólki er vísað á eru mjög trúverðugar og allt virkar mjög faglegt. Stundum er fólk beðið um að opna fjaraðgang inn í tölvuna sína eða heimabanka, til dæmis með forritum eins og AnyDesk. Almennt er gott að temja sér þá reglu að veita ekki aðgang að tölvu eða öðrum tækjum.

1. Hafðu samband við bankann

Hafðu samband sem fyrst við bankann þinn til að láta vita. Því fyrr sem brugðist er við, því meiri líkur eru á að hæg sé aðstöðva greiðsluna.

2. Tilkynntu svikin til lögreglu

Í tilkynningunni er hægt að gefa lögreglunni leyfi til að rannsaka málið hjá bankanum eða fjármálaþjónustunni. Það hjálpar við rannsókn málsins. Hægt er að tilkynna hér eða á næstu lögreglustöð.

Tilkynning um fjársvik

Varastu þjónustur á netinu sem bjóða upp á að endurheimta peninga. Það er þekkt svindl.

Góðar venjur

  • Skoðaðu auglýsingar um fjárfestingar með gagnrýnum augum.

  • Fjárfestu aðeins í gegnum opinberar og löggildar stofnanir. Notaðu síður eins og Scam Adviser til að athuga lögmæti vefsíðna.

  • Ekki fjárfesta í hlutum sem þú skilur ekki.

  • Farðu mjög varlega þegar þú sendir peninga til erlendra fjárfesta. Þegar peningarnir eru komnir úr landi er nánast ómögulegt fyrir einstakling að endurheimta þá.

  • Ef þú hefur þegar fjárfest og sérð að fjárfestirinn er að sækjast eftir greiðslum inn á mismunandi bankareikninga er öruggt að um svindl sé að ræða.

  • Varastu að trúa silkimjúkum söluræðum. Ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það of gott til að vera satt.

  • Farðu varlega með kortaupplýsingar og skilríki. Svindlarar sækja í þessar upplýsingar og nota þær til að stofna reikninga í nafni annarra til að fela peningaslóð.

  • Betur sjá augu en auga. Talaðu við fólk í kringum þig um þessi mál og fáðu álit þess. Ef þér var sagt að halda viðskiptunum leyndum er líklegt að um svik sé að ræða.

  • Notaðu alltaf örugg lykilorð og margþátta auðkenningar. Auðkennislyklar (e. passkey) eru öruggari en lykilorð og öryggislyklar á USB eru öruggasta auðkenningin.

  • Kynntu þér betur hvernig þú getur tryggt öryggi þitt á netinu.

Þjónustuaðili

Lögreglan