Fiskrækt
Með fiskrækt er leitast við að auka stærð fiskstofns í veiðivatni. Fiskrækt getur meðal annars falist í eftirfarandi aðgerðum:
Hrognagröftur
Seiðasleppingar
Slepping fullorðinna fiska
Markmið fiskræktar er að hafa áhrif á náttúrulega ferla. Mikilvægt er þó að gæta þess að röskun á vistkerfum og náttúrulegum fiskstofnum sé sem minnst.
Fiskræktaráætlun
Veiðifélög eða veiðiréttarhafar sem hyggjast stunda fiskrækt þurfa að gera fiskræktaráætlun. Fiskistofa metur framlagða fiskræktaráætlun að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar. Fiskistofa staðfestir fiskræktaráætlunina ef hún er ekki talin valda óásættanlegri röskun á vistkerfi viðkomandi veiðivatns.
Staðfest fiskræktaráætlun gildir í fimm ár.
Veiðifélag eða veiðiréttareigandi á að skila árlega upplýsingum um seiðasleppingar eða aðrar fiskræktaraðgerðir.
Flutningur fiska milli vatnakerfa
Bannað er að flytja fiska milli vatnakerfa.
Hægt er að sækja um undanþágu frá banninu til Fiskistofu. Með umsókn um undanþágu þarf að fylgja:
Greinargerð um fyrirhugaðan flutning.
Umsögn Fisksjúkdómanefndar
Fisksjúkdómanefnd metur hvort hætta sé á að sjúkdómar geti borist milli vatnakerfa með flutningi fiska.
Umsögn Hafrannsóknastofnunar
Hafrannsóknastofnun metur áhrif flutnings á lífríki og vistkerfi.

Þjónustuaðili
Fiskistofa