Áður en smíði hefst þarf að tilkynna Samgöngustofu um skipið eða bátinn og skila inn fylgigögnum.
Teikningar
Gildir fyrir eftirfarandi báta:
Fiskibátar
Farþegabátar
Aðrir vinnubátar
Eftirfarandi teikningar skulu fylgja umsókn um samþykkt á vinnubát:
Fyrirkomulagsteikning
sem sýnir bæði lóðréttan og láréttan langskurð af bátnum, þar sem fram koma skilrúm og aðrar styrkingar ásamt undirstöðum fyrir vél og annan búnað. Á fyrirkomulagsteikningunni skal einnig koma fram staðsetning vélar, eldsneytisgeyma, loftrása og þess háttar ásamt fyrirkomulagi í vistarverum.Útlitsteikning
sem sýnir til dæmis dyr, glugga, neyðarútganga, lestarop, austurop eða frárennsli af þilfari, björgunarstiga, handrið, festartæki, siglinga- og fiskveiðiljós, staðsetningu gúmbáts.Miðbandsteikning og minnst einn þverskurður fyrir framan og annar fyrir aftan miðbandið
þar sem fram koma efnismál og uppbygging bols og allar tengingar, svo sem tenging þilfars við súð, stýrishúss við þilfar og þess háttar.Lúgur og lokunarbúnaður þeirra
Mastur og bóma
Vélarundirstaða
Stýri
þar sem fram koma efnismál, efnisgæði og festing við bol, fyrirkomulag stýrisins og möguleikar á neyðarstýringu.Skrúfubúnaður
Eldsneytisgeymar
þar sem tilgreind er efnistegund og efnismál. Einnig skal sýna eldsneytislagnir, loka og síur.Austurbúnaður
þar sem tilgreind eru afköst á dælum og sýndar síur og lokar.Sjólagnir og lokar
Eldvarnir
þar sem sýnt er fyrirkomulag á föstum slökkvibúnaði, staðsetning kolsýrukúta og dreifistúta og fyrirkomulag stjórnbúnaðar slökkvibúnaðar og brunaboða. Ennfremur skal sýna frágang við eldavélar og rafmagnsofna.Gastæki vegna upphitunar
Rafbúnaður
þar sem fram kemur gerð og þverskurðarflatarmál strengja og gerð og stærð vara, rafgeyma og þess hátar, ásamt þéttleikastuðli rafbúnaðar á mismunandi stöðum í bátnum.Línuteikningar
Öryggisplan ef um farþegabát er að ræða
Önnur gögn
Útfyllt smíðalýsing:
Vegna vélaskipta:
Ásamt:
Stöðugleikagögn
Upplýsingar um afl og tegund vélar
Upplýsingar um smíðareglur, smíðastað og smíðaár
Upplýsingar um efnisgæði
Efnisprófanir ef um bát úr trefjaplasti er að ræða
Mælibréf og þjóðernisskírteini ef um innflutning er að ræða
Upplýsingar um stöðu skoðana ef um innflutning er að ræða
EIAPP - International Air Pollution Prevention Certificate - alþjóðlegt loftmengungarvarnarskírteini fyrir vél - Fyrir skip með vél stærri en 130 kW.
Samgöngustofa getur farið fram á viðbótargögn eftir því sem hönnun og frágangur gefur tilefni til.
Laga- og reglugerðastoð
Skipalög nr. 66/2021
Norðurlandareglur um smíði og búnað báta með mestu lengd allt að 15 metrum nr. 592/1994 með síðari breytingum
Teikningar
Gildir fyrir:
Fiskiskip
Farþegaskip
Önnur vinnuskip
Skip í flokkunarfélagi
Fyrir skip sem skráð er í flokkunarfélag skal eftirfarandi teikningum skilað inn áður en upphafsskoðun fer fram, að teknu tilliti til gerðar skips:
Aðalfyrirkomulag, langskurður og þilför, miðband, línu- og bandateikning v/ mælingar
Smíðafyrirkomulag með tilliti til eldvarna
Öryggisplan, eldvarnar- og slökkvibúnaðar
Fyrirkomulag og skrá yfir fjarskiptabúnað
Fyrirkomulag siglingaljósa
Austur- og sjókerfi
Tankafyrirkomulag
Fyrirkomulag fiskvinnslurýmis
Viðbót við skip sem ekki er í flokkunarfélagi
Fyrir skip sem ekki eru skráð í flokkunarfélag skal skila inn teikningum sem sýna eftirfarandi atriði til viðbótar við þau sem tilgreind voru fyrir skip í flokkunarfélagi:
Plötuklæðning, skjólborð og austurop
Vatnsþétt þil
Stýri og stýrisbúnaður
Vélaundirstöður
Gálgar og annar fiskveiðibúnaður
Undirstöður undir vindur og tæki á þilfari
Fyrirkomulag á þilfari
Austur á yfirbyggðu aðalþilfari
Fyrirkomulag í vélarúmum
Fyrirkomulag öxuls
Kælikerfi véla
Þrýstiloftskerfi
Eldsneytiskerfi
Aðalrafaflkerfi
Loftræstikerfi
Neyðarútgönguleiðir.
Sjálfvirkt ýringar-, eldviðvörunar- og eldskynjunarkerfi
Föst slökkvikerfi í lestarrýmum þar sem er mikil eldhætta
Aðalbrunalögn
Slökkvibúnaður í vélarúmum
Búnaður til að sjósetja og komast í björgunarför
Fyrirkomulagsteikningar af vistarverum áhafnar í mælikvarða sem er að minnsta kosti 1:25
Önnur gögn
Fyllt eyðublað:
Ásamt:
Stöðugleikagögn. Þar með talið hydrostatískar boglínur, jafnhallaboglínur, hallarprófunar skýrslu og línuteikningu.
Upplýsingar um tegund og gerð ásamt prufuplani aðalvélar, þar sem fram kemur afl við stöðugt álag.
Afrit af öllum skipsskírteinum m.a. mælibréfi og þjóðernisskírteini ef um innflutning er að ræða.
Skýrsla um hávaðamælingu.
Upplýsingar um stöðu skoðana þar með talið vél-, bol- og öxulskoðun frá fánaríki eða flokkunarfélagi og afrit af síðustu skoðunarskýrslum ásamt útistandi athugasemdum, ef einhverjar. Gildir einunis ef um innflutning er að ræða
Upplýsingar um smíðareglur skipsins, fyrir hvaða farsvið og hvort einhverjar takmarkanir hafi verið settar á skipið vegna hönnun þess eða búnaðar.
Upplýsingar um smíðastað, smíðaár og eftir því sem við á, hvenær meiriháttar breytingar fóru fram. Ef um innflutning er að ræða
EIAPP - Engine International Air Pollution Prevention Certificate - alþjóðlegt mengungarvarnarskírteini fyrir vél - Fyrir skip með vél stærri en 130 kílóvött (kW.).
Samgöngustofa getur farið fram á viðbótargögn eftir því sem hönnun og frágangur gefur tilefni til.
Laga- og reglugerðastoð
Fyrir öll skip
Skipalög nr. 66/2021, með síðari breytingum
Fyrir fiskiskip stærri en 15 metrar
Reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd nr. 122/2004, með síðari breytingum
Fyrir farþegaskip í innanlandssiglingum
Reglugerð um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum nr. 666/2001, með síðari breytingum
Fyrir önnur skip
Reglugerð um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa, nr. 189/1994, með síðari breytingum
Laga og reglugerðastoð
Skipalög nr. 66/2021

Þjónustuaðili
Samgöngustofa