Fara beint í efnið

Endurgreiðslur vegna ofgreiddra bóta frá Vinnumálastofnun

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra annast innheimtu á ofgreiddum bótum úr atvinnuleysistrygginga- og fæðingarorlofssjóði fyrir Vinnumálastofnun. Innheimtur er höfuðstóll ofgreiðslna ásamt 15% álagi.  

Innheimtuferli 

Þegar krafa er stofnuð birtist hún í heimabanka skuldara. Innheimtubréf eru send í pósthólf viðkomandi á island.is.  
Ef krafan fæst ekki greidd 30 dögum eftir að innheimtubréf hefur verið sent og ekki er samið um kröfuna er greiðsluáskorun birt af stefnuvotti. 

Eftirfarandi úrræði koma til, til að knýja á um greiðslur:

Greiðsludreifing

Beiðni um greiðsludreifingu þarf að berast skriflega á netfangið innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til embættis sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Lágmarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna í greiðsludreifingu er 10.000 krónur.

Athugið að hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990. Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.
Þá er einnig hægt að greiða með greiðslukorti.

Kæruleiðir

Hægt er að óska rökstuðnings, endurupptöku eða kæra niðurstöðu til Úrskurðarnefndar velferðarmála innan 3ja mánaða frá því að bréf Vinnumálastofnunar er dagsett. Lesa má nánar um kæruleiðir hjá Úrskurðarnefnd velferðarmála.

Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar en frestar aðför.  Hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar verið kærð skal senda staðfestingu um það til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra á netfangið innheimta@syslumenn.is

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar um endurkröfu má finna inni á mínar síður á heimasíðu þeirra.

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15