Sækja má um endurgreiðslu á greiddri staðgreiðslu, í sérstökum tilfellum, ef fyrirsjáanlegt er að til endurgreiðslu komi í álagningu þegar tekjuárið hefur verið gert upp.
Aðeins er tekið er á móti umsóknum á tímabilinu frá 1. október til 1. mars á hverju ári.
Umsókn um endurgreiðslu er samþykkt ef staðgreiðsla er að minnsta kosti 20% hærri en væntanleg álagning skatta og gjalda.
Þau sérstöku tilfelli sem taka má til greina eru vegna:
Náms
Tekjuskerðingar
Veikinda eða slysa
Andláts maka
Umsókn
Á umsókn þarf að koma fram rökstuðningur og fylgigögn til stuðnings.
Þegar umsókn er samþykkt er fjárhæð endurgreiðslu lögð inn á skráðan bankareikning. Bankaupplýsingar má skrá á þjónustuvef Skattsins.
Ítarefni
Endurgreiðsla staðgreiðslu – 18. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda
Skattstigi manna – 4. tl. 1. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
Þjónustuaðili
Skatturinn