Veiðar með dragnót innan 12 mílna og á öðrum sérstaklega skilgreindum svæðum eru háðar sértöku leyfi Fiskistofu.
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum í ágúst hvert ár og eru leyfin bundin við fiskveiðiár.
Skilyrði:
Almennt leyfi til veiða í atvinnuskyni
Leyfin eru eingöngu heimil skipum styttri en 42 metrar.
Leyfin eru aðeins fyrir skip með aflvísi lægri en 2500.
Landsvæði
Það má stunda veiðar með dragnót á ákveðnum svæðum sem getið er um í reglugerð um veiðar með dragnót við Ísland, þar kemur fram að heimilt er að veiða með dragnót á þeim svæðum sem heimilt er að stunda veiðar með botn og flotvörpu sbr. 5. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Leyfi til að veiða nær landi en það sem talið er upp í reglugerð er eingöngu með leyfi Fiskistofu.
Sérstök svæði er lokuð fyrir veiðum með dragnót og upplýsingar um þær lokanir er að finna í Hafsjánni.
Veiðarfæri
Lágmarksstærð möskva er 135 mm. Athugið að hér gilda ákvæði reglugerðar er varða möskvamæla og möskvamælingar.
Sérstaklega er fjallað um í reglugerð, legglugga sem er netstykki sem skorið er á legg.
Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferli og kostar leyfið 22.000 krónur
Þjónustuaðili
Fiskistofa