Fara beint í efnið

Dagsektir Persónuverndar

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra annast innheimtu dagsekta sem Persónuvernd ákvarðar. 

Innheimtuferli

Þegar krafa er stofnuð birtist hún í heimabanka skuldara. Innheimtubréf eru send í pósthólf viðkomandi á island.is.  
Ef krafan fæst ekki greidd 30 dögum eftir að innheimtubréf hefur verið sent og ekki er samið um kröfuna er greiðsluáskorun birt af stefnuvotti. 

Eftirfarandi úrræði koma til, til að knýja á um greiðslur:

Greiðsludreifing 

Beiðni um greiðsludreifingu þarf að berast skriflega á netfangið innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til embættis sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Lágmarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna í greiðsludreifingu er 10.000 krónur.


Athugið að hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990. Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.
Þá er einnig hægt að greiða með greiðslukorti.

Kæruleiðir

Ef sektarþoli vill ekki una ákvörðun Persónuverndar getur hann höfðað mál fyrir dómstólum innan þriggja mánaða frá því að honum var kynnt ákvörðunin.  Hafi ákvörðun Persónuverndar verið skotið til dómstóla skal senda staðfestingu um það til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra á netfangið innheimta@syslumenn.is


Ef dómsmál er höfðað er ekki heimilt að innheimta dagsektir fyrr en dómur fellur. Dagsektir byrja ekki að telja fyrr en dómur liggur fyrir. 

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15