Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dagsektir og stjórnvaldssektir Matvælastofnunar

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra annast innheimtu dagsekta og stjórnvaldssektar sem MAST ákvarðar.

Hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990. Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Greiðsludreifing

Ef þú getur ekki greitt kröfu í einu lagi getur þú sótt um greiðsludreifingu með því að senda skriflega beiðni á innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra

Skilyrði greiðsludreifingar

  • Lágmarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna: 10.000 krónur

  • Hámarkstími: 36 mánuðir

Innheimtuferli

Athugið að dráttarvextir reiknast á vangreidda kröfu mánuði eftir eindaga þess þrátt fyrir greiðslusamkomulag. Skuldajöfnuður við vaxtabætur fer einnig fram óháð greiðslusamningi.

Kæruleiðir

Hægt er að óska eftir rökstuðningi, endurupptöku eða kæra niðurstöðu til atvinnuvegaráðuneytisins innan 14 mánaða frá því að ákvörðun Matvælastofnunar var tekin.

Dagsektir sem ekki hafa verið innheimtar falla niður ef sektarþoli verður síðar við kröfum Matvælastofnunar.

Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar, en frestar aðför.

Ef ákvörðun er kærð skal senda staðfestingu til Sýslumanns á Norðurlandi vestra á netfangið innheimta@syslumenn.is.

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9.30 - 15
Fös. 9:30 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15