CITES vottorð
Fiskistofa sér um útgáfu CITES vottorða fyrir sjávarlífverur.
CITES vottorð eru gerð í samræmi við CITES samninginn en honum er ætlað að vernda dýra- og plöntutegundir sem eru í útrýmingarhættu. Samningurinn felur í sér reglur um inn- og útflutning á:
lifandi og dauðum dýrum,
plöntum og
afurðum þeirra.
Hvað þarf til að fá CITES vottorð?
Athuga hvort lífveran falli undir CITES
Er sú lífvera eða afurð sem um ræðir á lista yfir tegundir sem falla undir CITES-samninginn?Hafa samband við Fiskistofu
Senda beiðni á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is og óska eftir CITES-vottorði. Í beiðninni skulu koma fram skýrar upplýsingar um:hvaða lífvera eða afurð er um að ræða,
magn og þyngd,
hver er sendandi og hver er móttakandi.
Veita frekari upplýsingar ef óskað er eftir þeim
Fiskistofa kann að óska eftir nánari upplýsingum. Í sumum tilvikum þarf umsækjandi að leggja fram frekari gögn, til dæmis umsögn frá Hafrannsóknastofnun eða Náttúrufræðistofnun.
Mikilvægt að hafa í huga
Oft þarf einnig að gefa út CITES-vottorð í útflutnings- eða móttökulandi. Reglur geta verið mismunandi milli landa og sums staðar eru þær strangari en á Íslandi. Því er mikilvægt að ganga úr skugga um að móttökulandið samþykki flutninginn.
Sem dæmi má nefna að Ísland heimilar útflutning á hvalasýnum eða hvalaafurðum, en mörg lönd samþykkja ekki innflutning slíkra afurða.
Vottorðið kostar 27.800 krónur

Þjónustuaðili
Fiskistofa