Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ágreiningur um merki milli fasteigna- beiðni um sáttameðferð

Beiðni um sáttameðferð vegna ágreinings um merki fasteigna

Ef ágreiningur er milli eigenda um hvar mörk liggja milli fasteigna geta þeir, hvor í sínu lagi eða saman, leitað sátta hjá sýslumanni. Sýslumaður, eða fulltrúi hans, gegnir þá hlutverki sáttamiðlara.

Hvað eru merki fasteigna og merkjalýsing?

Merki er huglæg lína milli skilgreindra hornmarka og með vísan í aðliggjandi skika, til vinstri eða hægri frá markaðri stefnu. Merki er sýnt í merkjalýsingu og nýtist til útreikninga á stærð fasteignar.

Merkjalýsing er lýsing landfræðilegrar afmörkunar fasteignar eða landeignar með upplýsingum um eignamörk, upplýsingar um aðra skráningu fasteignar eða réttindi tengd henni.


Hvað þarf að koma fram í beiðni?

Í beiðni um sáttameðferð skulu vera:

  • upplýsingar um fasteignirnar

  • upplýsingar um eigendur

  • lýsing á ágreiningsefni

  • drög að merkjalýsingu


Merkjalýsandi

Sýslumaður tilnefnir merkjalýsanda, sem hefur fengið leyfi sem slíkur frá ráðherra. Aðilar máls fá tækifæri til að tjá sig um valið. Merkjalýsandi telst ekki sjálfkrafa vanhæfur þótt hann hafi áður unnið drög að viðkomandi merkjalýsingu áður en sáttameðferð hófst.

Hvernig fer sáttameðferð fram?

Að jafnaði:

  • Aðilar eru boðaðir hvor í sínu lagi á fund með sáttamiðlara

  • Síðan eru þeir boðaðir saman á fund

Ef sáttamiðlari telur þörf á, er farið í vettvangsferð á þrætusvæði.

Heimilt er að halda fundi:

  • í síma

  • með fjarfundarbúnaði

Þá þarf að gæta þess að öll orðaskipti heyrist skýrt.


Markmið sáttameðferðar

Reynt er að aðilar semji sjálfir um lausn á ágreiningi.

Ef samningar takast ekki leggur sýslumaður fram sáttatillögu þegar hann telur málið nægjanlega upplýst.

Tímarammi

Sáttameðferð skal að jafnaði:

  • ekki taka lengri tíma en 3 mánuði

  • aldrei lengur en 6 mánuði frá ákvörðun um að hefja hana

Undantekningar eru mögulegar ef sérstaklega stendur á.

Málskostnaður

Sýslumaður úrskurðar um skiptingu málskostnaðar vegna sáttameðferðar, þar á meðal kostnað vegna:

  • gagnaöflunar

  • hnitsetningar

  • uppdrátta

  • annarrar vinnslu tengdri merkjalýsingu

  • vinnuframlags sýslumanns

  • þóknunar til merkjalýsanda

Eigin kostnaður málsaðila telst ekki til málskostnaðar.


Hvernig er kostnaður metinn?

Í úrskurði sýslumanns skal sundurliða heildarkostnað.

Við mat á:

  • vinnuframlagi sýslumanns er horft til launa- og starfsmannakostnaðar sem fellur beint til vegna málsins

  • þóknun merkjalýsanda er meðal annars horft til tímaskýrslu hans og sannanlegs útlagðs kostnaðar


Skipting kostnaðar

Almennt er miðað við að málsaðilar skipti kostnaði jafnt.

Sýslumaður getur þó ákveðið aðra skiptingu ef það þykir sanngjarnt með hliðsjón af atvikum máls og niðurstöðu.

Innheimta kostnaðar

Heimilt er að gera fjárnám fyrir málskostnaði á grundvelli úrskurðar sýslumanns.
Málshöfðun frestar ekki aðför samkvæmt úrskurðinum.


Niðurstaða sáttameðferðar

Ef aðilar ná sátt:

  • merkjalýsing er samþykkt og undirrituð af aðilum og merkjalýsanda

  • sýslumaður sendir hana til skráningar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Sáttameðferð getur lokið:

  • með sátt um allt málið

  • með sátt um hluta máls

Ef sátt næst ekki:

Takist ekki sættir gefur sýslumaður út vottorð þess efnis.

Í vottorðinu skal koma fram:

  • hverjir eru aðilar máls

  • afmörkun þrætusvæðis

  • hvernig sáttameðferð fór fram

  • helstu ágreiningsatriði

  • afstaða aðila

Heimilt er að gefa út vottorð um árangurslausa sáttameðferð ef:

  • aðilar mæta ekki á sáttafund eftir að þeim hefur sannanlega verið send kvaðning tvívegis, eða

  • sýslumaður telur ljóst að sáttatilraunir muni ekki bera árangur


Sýslumaður skal að lágmarki halda tvo sáttafundi áður en sáttamiðlun er lýst árangurslaus.
Heimilt er að boða fleiri fundi ef líkur eru taldar á að sættir náist.

Beiðni um sáttameðferð vegna ágreinings um merki fasteigna

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9.30 - 15
Fös. 9:30 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15